Aðalvalmynd

Leit

Auglýsing

Könnun

How do you like Iceland?

Af Lagi númer tvö.... I´ll Be There...

28. september 2006 klukkan 07:43
Jæja.. ég hef eytt óteljandi miklum tíma í stúdeóinu með honum Kristjáni undanfarnar vikur og nú eru 3 lög nálægt því að vera tilbúin.... skellið ykkur á www.myspace.com/roggz og fáið tóndæmi... og já þið megið kommenta á afurðirnar...   Annars er ég bara nokkuð busy þessa dagana við að vinna, læra og stúdeóast...

Röggz...
Röggss...

Af nýju lagi beint úr stúdeói...

15. ágúst 2006 klukkan 03:23
jæja... þá er ég kominn með www.myspace.com/roggz og þar er að finna nýja lagið sem ég var að klára að vinna í stúdeóinu með Kristjáni Edelstein.... sem btw er einn mesti snillingur sem ég hef hitt í tónlist so far.... endilega kíkið á þetta og gefið einhver komment....:)

Annars bara beljugóður... golfari dauðans...

Röggss...
Röggss...

Af atvinnumótmælanda.....

09. ágúst 2006 klukkan 21:14
Já mikið rétt... ég er að spá í að gerast atvinnumótmælandi.... það er væntanlega hvergi betra að mótmæla en í lýðræðisríkinu Íslandi... þar sem mannréttindi eru eins sjálfsagður hlutur og aðgangur að vatni og öðrum vistum... Er að spá í að tjalda í Kjarnaskógi og mótmæla því að grasið virðist grænna hinum megin við lækinn.... skil ekkert í þessu ranglæti... ég vona bara að löggan leyfi mér að standa í þessu brölti mínu... svona af því að ég hef nú stjórnarskrár varinn rétt til þess að tjá mig.... svo þegar ég er búinn að mótmæla því er ég að spá í að plassera bílnum mínum mitt á milli Reykjavíkur og Akureyrar og mótmæla því að bensínverð hækki alltaf um sömu krónu töluna hjá öllum "samkeppnis" fyrirtækjunum á þessum markaði hérna.... og svo er ég að spá í að setja heilsíðu auglýsingu í New York Times og auglýsa eftir verðlækkunum á bensíni þegar krónan styrkist nú aftur.... svona af því að þeir eru svo fljótir að hækka þegar hún veikist.... jafnvel er ég að spá í að skella þeirri skoðun minni fram í þessari auglýsingu að þessir innkaupastjórar (olíufélagana) séu líklega þeir lélegustu í allri norðanverðri Evrópu... þeir virðast alltaf eiga endalausar birgðir af dýrari olíu en almennt gengur og gerist og svo þegar hækkun á heimsmarkaði kemur... nú þá hækka þeir náttúrulega verðið... voðalega skrýtið eitthvað... kannski er ég bara svona vitlaus.... hver veit... kannski sér einhver innkaupastjórinn sér færi á því að sækja um starf hjá þeim og koma með einhverja nýjung í þetta.... hmmm... hver gæti hún nú verið.... lækkun??? pæling...  Svo er ég að spá í að mótmæla því hvernig tekið er á friðsömum mótmælendum við Kárahnjúka.... ég meina hver vill hafa lögregluna fyrir utan hjá sér( þetta ágæta fólk sem þarna er að mótmæla á væntanlega bara heima þar sem skemmtilegustu mótmælin eru þannig að þetta er þeirra heimili í dag...) mundandi linsunni hægri og vinstri... skrifa niður hvað ég læt í mig og á... nei takk... ég vil bara fá að vera í friði.... takk fyrir túkall.  Held að þetta gætu orðið svolítið skemmtileg mótmæli... svona öðruvísi en þeir eiga kannski að venjast þarna í lögreglunni fyrir austan.... merkilegt nokk hvað manni getur misboðið ofvaldið sem sumir kjósa að beita... það liggur við að maður falllist á öll sjónarmið mótmælenda þegar viðbrögð yfirvaldsins eru svo harkaleg eins og núna..... held að margir megi nú aðeins fara að spá í sín mál.... svona bara smá.... þó það væri nú ekki nema til að menn fái ekki það á tilfinninguna að lögreglan vilji stjórna því hvernig ég hugsa, stend og hvað ég segi..... ja... maður spyr sig....

kveðja,

Röggss... atvinnumótmælandi... nú eða bara fúll á móti...:)
Röggss...

Af munkinum góða....

19. júlí 2006 klukkan 21:53
jæja ætli það sé ekki kominn tími til að setja nokkra stafi á skjáinn hérna....

Fyrirsögnin gæti ekki verið betri... ég er nefnilega þessa dagana að lesa bók sem ber þann skemmtilega titil: Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn.  Þessi bók er í hnotskurn allar mínar innri pælingar og frábær lesning í alla staði.... mæli eindregið með því að allir sem lesa bloggið mitt sem eru nú ekki svo margir, lesi þessa bók...

Að hver og einn stjórnar sínum eigin hugsunum og kraftur hverrar hugsunar er svo mikill að þar er hvergi rúm fyrir eina einustu neikvæða hugsun.  Því hver einasta neikvæða hugsun er eins og lítið fræ sem gerir ekki annað en að vaxa... og eitrar útfrá sér.  Ef maður temur sér að ýta öllum neikvæðum hugsunum frá sér og í hvert einasta skipti sem slíkar hugsanir koma upp að hugsa þá strax um eitthvað jákvætt.. hætta strax í neikvæðu pælingunni.. og trúið mér og treystið að dagarnir verða strax betri.  Neikvæðar hugsanir eru nefnilega vítahringur sem gerir ekki annað en að vaxa... það er bara svoleiðis... svo er líka enn önnur pæling og það er að það er algerlega óþarfi að vera að stressa sig uppí 5 veldi yfir einhverju sem maður hvorki stjórnar né hefur áhrif á.. t.d. leiðinlegt veður, neikvæðar manneskjur sem verða á vegi manns, ökumenn sem aka fáránlega og svo mætti lengi telja.  Betra er að fókusera á það sem er jákvætt því það er af nógu að taka.  Við hvert "áfall" opnast alltaf einhverjar nýjar dyr, með nýjum tækifærum og möguleikum.  Og ef maður er svo góður að geta tamið sér slíkan hugsunarhátt breytist grár hversdagsleikinn í það að vera nýr dagur uppfullur af nýjum spennandi tækifærum, nýtt fólk sem maður getur hitt, sumt spennandi annað ekki... en einblínum á það sem er spennandi... því það er það sem er uppbyggilegt og gott.  Ég viðurkenni það að við fyrstu sýn er yfirleitt léttara að bölva og setja útá hluti.. en þegar þetta er skoðað í kjölin er hitt mun áhrifameira... semsagt tala í lausnum ekki vandamálum:)

Til að geta upplifað drauma sína verður maður að vera móttækilegur fyrir því að þeir geti ræst... það að þora að taka sénsa til að upplifa það sem mann hefur alltaf dreymt um er hluti af því að verða sigurvegari.  Og til að hafa þessa draumsýn verður hugarástandið að vera jákvætt, andlegt jafnvægi er lykillinn að miklu meiru heldur en bara vellíðan í dag.. hún er lykillinn að því að maður lifir lengur... heilsan verður betri... þrekið verður meira.. í einu orði sagt verður lífið betra.

Þar sem ég fór um daginn í 2 vikna maraþon útilegu með strákunum mínum þremur.  Fékk jeppa frænda lánaðann ásamt fellihýsi og bara brunaði af stað... byrjuðum á því að tjalda á Blöndósi... frábær staður til að slappa af á... ein nótt þar og um morguninn ætluðum við að halda áfram... nei nei haldiði að sveifin sem skrúfar fellihýsið niður hafi ekki tekið uppá því að bila... og þarna sit ég fastur með fellihýsið "læst" í efstu stillingu með 3 púka sem þurfa nú að skemmta sér svolítið... í 3 klukkutíma... þetta var alveg meiriháttar frábært... ég náttúrulega hringdi í alla í heiminum nema Bush... (hann hefði líklega sagt að þarna væru hryðjuverkamenn á ferð og neitað að senda herliðið heim!!!!) og svo með símann á eyranu spilaði ég fótbolta við púkana mína... hló eins og hálfviti af vitleysunni sem ég var kominn í á fyrsta degi útilegunnar... en að sjálfsögðu reddaðist allt fyrir rest... einhver hefði étið hattinn sinn og blótað öllum í sand og ösku...
Svo kíktum við í Ásbyrgi, Hljóðakletta og Dettifoss... það var magnað að sjá hökuna á litlu púkunum mínum detta niður í grasið yfir því hvað allt var flott á þessum stöðum... áfram var þó haldið og næsta stopp var Atlavík... ekki sáum við Ringo Starr né Stuðmenn en þarna var hellingur af frábæru fólki í þeim eina tilgangi að skemmta sér með börnunum sínum... veðrið var algerlega óborganlegt... blár himininn skipti fyrst lit upp úr miðnætti þegar ég var búinn að svæfa púkana og tölti með bókina góðu niður á ströndina... settist eins og hver annar furðufugl á stein og horfði á rauðglóandi himininn spegla sig í Leginum... og las nokkra kafla... þetta var alveg hreint mögnuð upplifun... Síðan morguninn eftir rigndi eldi og brennistein... og ég get sagt ykkur það að við feðgarnir dressuðum okkur upp og skelltum okkur í fótbolta.... ég tapaði reyndar en rosalega var gaman að fá rigninguna beint niður á okkur svo hvergi var þurrann þráð að finna á okkur... þessu var slúttað með heitu súkkulaði og kleinum:) vegleg uppskeru hátíð það...hehehe...  Svo var hringnum lokað með því að fara uppá Kárahnjúka... magnað hvað þetta dót þarna er stórt og mikið.... og svæðið sem fer undir vatn er nú bara bísna stórt.... ætla ekkert að kommenta á gildi þessarar virkjunar en ég held að það verði gaman að koma þarna aftur þegar þetta er allt yfirstaðið og þeir sem stjórna hér láti nú staðarnumið...  reyndar var hringnum ekki lokað með þessu... honum var lokað með því að keyra alla firðina fyrir austan... skoðuðum hvern foss sem á vegi okkar varð... og eruð þið ekki að grínast hvað fjöllin þarna eru flott... þetta er einn af fallegri stöðum landsins... (að sjálfsögðu er Eyjafjörðurinn fallegastur..:) ), á leið okkar til Rvk eða borg óttans og rigningar... skoðuðum við allar perlur sem á vegi okkar urðu... jökulsárlón, Skaftafell, sandana, auðnina, náttúruna almennt... þessi ferð var bara KAFFI góð...:)

Annars nóg í bili...

Röggss...
Röggss...

Af maraþon útilegu...

07. júlí 2006 klukkan 15:56
Jæja... ekki búinn að vera beint í tölvusambandi síðustu vikur.... en samt... búinn að spá og spegulera hvernig næsti pistill ætti nú að vera..... best að fjalla aðeins um hvað hefur gerst uppá síðkastið...

Það var farið til Vestmannaeyja... shell mótið.... var liðsstjóri hjá 9 ára syni mínum og þeir voru jú einmitt 9 í liðinu.  Það var vaknað 7.30 á hverjum morgni og ég var svona eiginlega pabbi þeirra allra frá 8 til 21 á kvöldin... síðan tóku við kvöldvökur fullorðinna á Kaffi Maríu.... hún saknar okkar enn......:) þessi langa helgi var klárlega snilld í alla staði... fínasta upphitun fyrir þjóðhátíð....

Svo þar sem ég er húsnæðislaus núna í 2 vikur þá ákvað ég að fara bara í svona 2 vikna óvissuferð með púkana mína... og þar sem fyrsta áfanga er lokið þá er hringvegurinn hálfnaður... þ.e. við höfum sofið á tjaldstæðinu á Blöndós, Öddu mega frænku á Ak... Steina bróður á einhverjum bóndabæ fyrir austan fjall... (nálægt Húsavík)... og nei.. hann er ekki bóndi.. þetta er einhver svona orlofsbóndabæjarsumarbústaður.... jahá!  Það er búið að keyra í Ásbyrgi með alla púkana, skoða Hljóðakletta... Dettifoss...Mývatn.. og Náttúrulega óbyggðirnar allt þar á milli... virikilega gaman að segja 9, 6, 3 ára sonum mínum frá því að allt þetta ekkert sem við sáum á leiðinni væri helsta ástæða þess að útlendingar kæmu hingað..... þeir voru soldið skeptiskir á það að trúa því... svona til að byrja með... en þeir fengu að vita hvað hver einasta þúfa heitir á leiðinni þar sem ég púllaði pabba minn á þetta.... en sá mikli snillingur(semsagt pabbi) veit hvað hver steinn á Íslandi heitir.... og pabbi hans líka.... og ég er sannfærður um að þessar algerlega tilgangslausu upplýsingar veita þeim ánægju seinna meir.... mér fannst til dæmis frábært að hlusta á pabba lýsa þessu á sínum tíma.... RIGHT!!!!! en ég þakka honum í dag....:) svo þetta er ekki ósvipað og að standa í hlutabréfaviðskipum.... þetta er langtímafjárfesting.....:)

Annars kemur djúpur pistill næst... um pælingar Röggss....

þangað til....

Röggss...
Röggss...

Af útilegumótaröðinni... fyrsti hluti...

21. júní 2006 klukkan 17:53
Jæja þá er nefndin búin að skila áliti.... sem farið var yfir á stjórnarfundi í morgun... það verður semsagt farið í Vaglaskóg... ekki Ásbyrgi... þannig að þeir sem voru búnnir að setja nagladekkin undir verða að undo it..... Annars á veðrið víst að vera bara þokkalegt þannig að allt stefnir í mergjaða frægðarför.... ræst verður út af öllum teigum samtímis... þ.e. eftir vinnu á föstudag... brunað í Vínbúðina... og svo bara LA GO!!! Sunginn verður frægðarsöngur ala Dallas alla vegna framað Þelamörk... eða nei... það er víst í hina áttina... alla vegna ... það verður eitthvað sungið þarna á leiðinni austur fyrir... svo mun ég gefa þessu smá spice... svona með þvi að mixa einn disk eða svo.... það er alltaf farið í leikinn "HVERT var lagið???" þegar ég ek á mínu rólega tempói.... myndast oft skemmtileg spenna í kringum þetta... oft má heyra svona stunur og hróp og köll....  Svo verður bara grillað... leikið eitthvað... væntanlega fallin spýta... eða sannleikann eða kontor.... hehe... ég er nú ekki kallaður boðberi sannleikans fyrir ekki neitt.... eða var það Jónas... ex ritstjóri DV... man það ekki alveg.... anyways.... allir velkomnir í skóginn.... stórir sem smáir... já Gústi... þú mátt koma...

Annars er ég bara í rólegum fíling þessa dagana... hef látið sjá mig á golfvellinum....  vann til að mynda Jonna Magg við mikinn fögnuð viðstaddra....(Valda) og svo fór maður á æfingasvæðið í gær eftir vinnu... svona til að berja þetta drasl aðeins til... heyrði helvíti góðan frasa þar hjá einum golfkennaranum.... og hann var að tala við unga konu... here goes..."Sko berðu þetta bara eins og þú myndir berja manninn þinn ef þú kæmir heim og hann væri þar með einhverja aðra að halda framhjá þér!!!!! "  í beinu framhaldi var ég að spá í að skrá mig bara í fluguhnýtingar.... eða eitthvað álíka... en samt... get ekki beðið eftir næsta tíma hjá þessum.....

ykkar,

Röggss...
Röggss...

Af helginni... næstu helgi... og vöntun....

19. júní 2006 klukkan 18:31
Helgin var að sjálfsögðu mögnuð... var með púkana mína hérna í maraþon sundlaugarferðum og annarri útivist... svo var heljarinnar grillveisla hjá mér á laugardagskvöldið... horft á Hreiðar og félaga slátra svíagrýlunni... og nú er sú gamla endanlega dauð... og djöfull var ég ánægður með strákinn í leiknum... stóð sig eins og hetja!!!!! Hann á að vera markmaður nr. eitt í landsliðinu... það er bara svoleiðis!!! Ég set inn myndir af grillveislunni í kvöld en nú að öðru...

Næstkomandi föstudag verður farið í útilegu í Ásbyrgi og er þetta fyrsta leigan af nokkrum í útilegumótaröð B10 og E2.. eða bara Dallas... allir velkomnir og endilega ef menn vilja grilla góðan mat í góðu veðri og síðast en ekki síst í góðra vinahóp....

Svo að vöntun... jú mig vantar nefnilega ýmislegt... konu td. en samkvæmt draumförum ljóskunnar stendur það allt til bóta....;) en mest vantar mig þó hljóðfæraleikara... mig vantar einhvern sem kann á fiðlu, eitt stk. sellóleikara, eitt stk. bassaleikara, gítarleikara, og svo trommara.... þannig að áhugasamir endilega hafið samband...

annars bara nokkuð góður,

Röggss...
Röggss...

Af demolagi nr. uno...

16. júní 2006 klukkan 04:31
Þar sem ég nenni ekki að blogga núna ætla ég að henda inn textanum af demo lagi númer eitt hjá mér....

Lagið heitir Let me love you....

So it feels like this,
to kiss your sweet lips.
I felt my arms around you.

The air was soft
and we talked alot.
I wanted to know much more about you.

Oh..... just let me love you...
Oh..... just let me love you...

Looking in your eyes,
so many signs.
How I´m longing to brake you.

And your burning skin
and everything within.
Hard to wakeup knowing I just dreamt you...

Oh...  just let me love you...
Oh...  just let me love you...
It feels like reaching for the stars above....
are you there... my love....
I feel like I´m a child in my own time...
feel so alive....
Oh...  just let me love you....
Oh...  just let me love you....

Og hana nú....

ykkar,

Röggss...



Röggss...

Af keppni við sjálfan þig....

14. júní 2006 klukkan 05:18

Það er rosalega gaman að keppa við sjálfan sig.... það að reyna eftir öllu megni að toppa sig í einhverju sem maður tekur sér fyrir hendur.... þ.e.a.s. að vinna sjálfan sig... ég td. er búinn að vera að keppa við sjálfan mig í djammi síðasta árið.... held að ég hafi örugglega tapað... eða alla vegna hefur hvorki ég né ég lýst því opinberlega yfir að ég hafi sigrað... what!!! anyways.... þessi keppni var eins tilgangslaus og hún var heimskuleg... samt soldið þörf... en klárlega tilgangslausheimska..;) oft var æði gaman... stundum lala... og stundum bara ekkert spes... hmmm... er þetta ekki alltaf svona á djamminu.. ??? tja... spyr sá sem veit....hehehe... Ég held að það sé bara ágætt að gera þetta í temmilegu hófi... og allt hitt líka... alla vegna þetta er búið og gert... og þar sem ég kann ekki að sjá á eftir einhverjum hlutum og finnst slíkt algerlega óþarfi... það er alla vegna mín skoðun að hægt sé að læra af hlutum... lifa með hlutum... en að sjá beinlínis eftir einhverju.. er algerlega útúr kortinu.. ekki nema eitthvað hafi verið gert sem verður ekki tekið til baka... eða unnið upp.  Mín skoðun.  Ég er meira  í því að kortleggja það sem liggur fyrir framan mig... hvernig get ég unnið úr þeim spilum sem eru á borðinu fyrir framan mig.... og það er það sem ég er að gera núna... frábæru skeiði í lífi mínu er tja... að ljúka.. og nú tekur viðreisnin við...hehehe...

Skólinn er í svolítið miklum forgangi, aðrar áherslur fara í gang í vinnunni, spurning með handboltann... hvað á maður að gera með hann... jæja.. það ræðst alla vegna... en eitt veit ég að ég get gert... og það er t.d. að vera ánægður með lífið og tilveruna... það er bara fastur punktur hérna... þetta að vakna með flís í bakinu brosandi er eitthvað sem ég get ekki hætt að hlæja að....

Og hvernig er nú best að keppa við sjálfan sig.... tja.. það fyrsta sem ég flaskaði á í þessari djamm-keppni við sjálfan mig var náttúrulega að setja mér ekki skriflega markmið... t.d. ég ætla að verða mesti djammari á Akureyri.. eða norðurlandi.... eða Íslandi... vuhú... jæja.. .ég hefði þó alla vegna haft einhverja sýn á það sem ég var að gera... og svo kannski svona á sunnudögum hefði ég getað reynt að fara yfir helgina.... hvar voru veikleikarnir og hvar stóð ég mig vel.... já .. rann þessi drykkur vel niður... flott reyni það aftur... hehehe... SEMSAGT

Markmið eru algerlega nauðsynleg í þessa keppni.... það að hafa sýn á það hvert maður vill stefna... klárlega auðveldar þér að komast þangað... það segir sér nokkurn veginn sjálft... þetta er eins og að keyra á ókunnugum stað án korts og skilja aldrei neitt í því afhverju í veröldinni maður ratar aldrei á réttann stað.... hmmm... pæling... MARKMIÐ MARKMIÐ MARKMIÐ... og helst skrifa þau niður... það er ágætt að skoða þau annað slagið.. og ef að þetta eru þín persónulegu  markmið.. hafðu þau þá bara fyrir þig... það er langbest... fólkið í kringum þig tekur hvort eð er eftir því þegar árangurinn er farinn að láta á sér bera... ekki endilega veraldlegur... horfum aðeins inní okkur... það er það sem skiptir mestu máli..  að okkur líði vel sem persónu.. geta litið í spegil og frontað sjálfan sig... það er málið í lífinu... mín skoðun. 

Og til þess að komast á leiðarenda.. er gott að hafa í huga að lífið er langhlaup... en ekki spretthlaup... þetta hefst með seiglunni.... og af henni eigum við flest nóg....

ykkar,

Röggss...

Röggss...

Af útbreiddum faðmi góðra vina....

12. júní 2006 klukkan 05:20
Þessi helgi er búin að vera ótrúlega skemmtileg.... Valdi er búinn að fóstra mig og ég hann... það er búið að vera maraþon fótbolta og handboltagláp alla helgina... hann er búinn að galdra fram hvern réttinn af öðrum af grillinu og það er búið að spila einhvern póker... þannig að allir ættu klárlega að vera ánægðir.... síðan var kíkt eitthvað út á lífið... nánar tiltekið á kaffi akureyri... sem er án efa heitasti staðurinn í dag... enda fór brunakerfið í gang nokkrum sinnum um kvöldið.... þar var allt troðið af útskriftarnemum sem og öðrum nemum.... allir í feikna stuði og vil ég nota tækifærið og óska öllum þeim sem voru að útskrifast innilega til hamingju með þennan áfanga í lífinu og vona að allir hafi átt eftirminnilegan dag... alla vegna var þetta eftirminnilegur dagur hjá mér... og ekki var ég að útskrifast... :)   eftir Kaffi Ak... var haldið út í blíðuna... svo í eftirpartý... þar sem mér tókst næstum því að drepa mig með einhverju heimskulegasta flikk flakk kraftstökki sem sögur fara af... ekki það að ég treysti mér ekki til að framkvæma þetta... svona á sléttu grasi og bláedrú... en það var kannski ekki alveg þannig þarna um 6 um morguninn.... lenti á hausnum og það brakaði í öllum hryggjarliðum og hálsliðum niður í ras****..... fann ekkert fyrir þessu þá... hmmm... skil ekki afhverju... var bara feginn að geta hreyft litlu tá... en hins vegar í morgun... helló... þá burstaði ég hina víðfrægu E2 fasturhausábúk.is keppni með yfirburðum... gat ekki annað en brosað að sjálfum mér og jafnvel hlegið að eigin heimsku... setti lagið Forever Young í botn og byrjaði að fíla daginn...... það er víst eina leiðin til þess að fá eitthvað út úr þessu frábæra lífi...:)  Einhver ónafngreind gullfalleg manneskja stal af mér vatnssopa á Kaffi Ak... tja... eða fékk hann lánaðann... sem var bara gaman að upplifa... vatn hressir bætir og kætir... alveg eins og malt.... hmmm.... hvað gerðist nú meira.. jú aldrei þessu vant þá tók ég nokkur spor á dansgólfinu .... eða alveg þangað til DJ inn bað mig vinsamlegast ekki að hreyfa mig mikið meira þetta kvöldið..... skil ekkert í þessum DJ... anyways... meira vatn innbyrt og síðan enn meira.... hef sjaldan ef nokkurn tímann verið jafn lítið á barnum... og þar af leiðandi eytt jafn litlu á einu kvöldi síðan ég flutti hingað norður... og það er einhvern veginn frábært að vakna líka daginn eftir og muna eftir öllu sem gerðist um kvöldið... enda var ég því sem næst edrú... 

Og svo smá svona af því sem er að gerast í kollinum á mér þessa dagana...

Mig langar rosalega mikið að fara að vakna við hliðina á manneskju sem ég elska útaf lífinu.... geta farið fram... lagað kaffi... fært henni morgunmat í rúmið... sent henni sæt sms yfir daginn... iðað í skinninu bara á því að horfa á hana... finna fyrir vörum hennar á mínum..... þó ég sé bara í vinnunni að dagdreyma... en þangað til ég finn hana.... ætla ég að reyna að finna mig... það er víst sögð vera ágætisbyrjun....

Jæja... nóg af mér.... vona að þið hafið skemmt ykkur jafnvel um helgina og ég.... og notið lífsins... til þess er það víst....;)

ykkar,

Röggss...
Röggss...